Húsið er um 60 fermetrar að stærð. Rúmstæði eru fyrir 8 manns í þremur herbergjum. Tvíbreitt rúm er í einu herbergi, tvær kojur í öðru og tvíbreið koja og einbreitt rúm í því þriðja. Svefnsófi er í stofunni og barnarúm. 

Gæludýraeigendur hafa leyfi til að nýta sér þetta hús til samveru með sínum gæludýrum. Vinsamlegast athugið að lausaganga hunda er ekki leyfð á svæðinu. Fólki með ofnæmi fyrir dýrum er ráðlagt að fara ekki í þetta hús.

Umsjónarmaður býður upp á þrif fyrir félagsmenn á 15.000 kr. Það á að hafa beint samband umsjónarmann í síma;  698 4043

Golfklúbburinn úthlíð - Leiðbeiningar um notkun fríkorta fyrir sumarhús