Húsið er 60 fm að stærð auk 9 fm geymslu og stendur við Hátún 4. Húsið er með svefnstæði fyrir 8 manns auk barnarúms. Á veröndinni er heitur pottur. Nokkur sumarhús eru á svæðinu og leiktæki fyrir börn. Þessi bústaður er hannaður með aðgengi fyrir fatlaða.