Íbúðin er 92 fm að stærð. Hún skiptist í stofu, borðstofu, bað og 3 svefnherbergi. Öll herbergi með hjónarúmi. Í holi er svefnsófi og kojur fyrir börn/unglinga. Sængur og annar búnaður er fyrir 8 manns.