Húsið er 54fm með 26fm svefnlofti. Það skiptist í tvö svefnherbergi, annað með hjónarúmi og hitt með kojum. Svefnpláss er fyrir 5 í herbergjunum og svefnloft fyrir allt að 5 manns.

Sængur og koddar eru fyrir 8 manns. Borðbúnaður er fyrir 10 manns. Gasgrill og heitur pottur. Heimilt er að hafa gæludýr í húsinu.

Félagsmenn skulu ganga vel um húsið og hver leigjandi ræstir eftir sig. Hafa þarf með sér lín, handklæði, wc-pappír.

Sumarhúsið er á skemmtilegum stað í Ölfusinu undir hlíðum Ingólfsfjalls. Húsið er vel búið með fallegu útsýni yfir sveitina. Það er nærri allri þjónustu en þó í kyrrð og næði sveitarinnar.

Ath! Myndir sem fylgja eru úr eins húsi á svæðinu, eini munurinn á að vera að það speglast við hitt