Vaðnes er u.þ.b. 75 km frá Reykjavík, nálægt kerinu í Grímsnesi. Húsið er um 63fm að stærð með gistimöguleika fyrir 5-6, þ.e. fyrir utan barnaferðarúm.

Húsið er með þremur svefnherbergjum. Í fyrsta herberginu er tvíbreitt rúm, 140x2, í næsta er koja 90x2 og í þriðja herberginu er tvíbreitt rúm 153x2.

Sængur og koddar eru fyrir 6 manns. Taka þarf með sér rúmfatnað, handklæði, borðtuskur, viskastykki, salernispappír og ruslapoka.

Moppur eru til staðar til að skúra og efni til þrifa.