Húsið er 52fm og er nyrst í Eyrarhlíð. Í húsinu eru rúmstæði fyrir 6 manns í þremur herbergjum, þar af eru tvö tvöföld rúm.

Borðbúnaður og áhöld eru fyrir 8 manns. Húsið hefur verið endurnýjað að innan bæði hvað varðar innréttingar, rúm og stofuhúsgögn.

Taka þarf með sér; sængurfatnað (lín), handklæði, diskaþurrkur, borðklúta, salernispappír, ruslapoka o.þ.h.

Þráðlaust 4G samband er við Vodafone. Nánari upplýsingar í bústaðnum.

Hægt er að kaupa þrif fyrir brottför, panta þarf fljótlega við komu í bústaðinn; 776-8008.