Um er að ræða glæsilegt 80 fermetra orlofshús með öllum helstu þægindum, stórum palli og heitum potti. 

Svefnherbergi eru þrjú, tvö hjónaherbergi, í öðru er tvíbreitt rúm (160cm) og í hinu 2x80cm rúm og eitt herbergi með koju á þremur hæðum, neðsta kojan er 120 cm og tvær efri eru 80cm.

Sængur og koddar fyrir 8 manns. Eldhús og stofa eru í sama rýminu. Borðbúnaður er fyrir 10-12 manns.  Nettenging:  4G.

Leiktæki fyrir börn er víða að finna á þessu svæði, ærslabelgur, tveir sparkvellir eru í hverfinu og minigolfvöllur. 

Þrífa þarf bústað, grillið og heita pottinn við brottför, tæma uppþv.vélina og fara með ALLT rusl, dósir, gler o.þ.h.