Um er að ræða íbúð í raðhúsalengju, um 72,4 m2 að stærð. Svefnpláss er fyrir 6 manns. Á neðri hæð er hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi (180cm), herbergi með 2x90cm einbreiðum rúmum og baðherbergi með sturtu. 

Á efri hæð er stofa/borðstofa og eldhús í samfelldu rými. Eitt herbergi er á efri hæð með 150x200cm rúmi. Út frá efri hæð eru svalir með svalahúsgögnum og gasgrilli. Áhöld eru til að þrífa grillið.

Nettenging er 4G. 

Ekki er séð fyrir ; sængurlíni, handklæðum, borðtuskum, viskastykkjum, wc pappír og eldhúspappír, uppþvottalegi og handsápu. Í íbúðinni eru hreinlætisáhöld og hreinsiefni.

Í nágrenninu er hægt að stunda ýmsa afþreyingu á borð við gönguferðir. Golfvöll er að finna í 1,1 km fjarlægð frá gististaðnum.

Þá er vert að benda á áhugaverðan valkost sem er að nota Breiðafjarðarferjuna Baldur en hún siglir milli Brjánslækjar í Vatnsfirði og Stykkishólms með viðkomu í Flatey. Þarna eru því margir möguleikar á styttri og lengri ferðum fyrir dvalargesti.