Sumarið 2021 verður aftur í boði íbúð á Spáni. Þrátt fyrir óvissu um Covid var ákveðið að sjá til með hvernig ástandið þróast og bjóða upp á þennan orlofskost aftur. Því geta félagsmenn tekið hana á leigu næstu sumar og gildir fyrstur pantar, fyrstur fær.

Um er að ræða efri sérhæð í nýlegum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu sem er í um 30 mín. fjarlægð frá Alicante, á svæði sem heitir Casa Tarife. Í íbúðinni eru tvö svefnherbergi, stofa, eldhús og tvö baðherbergi. Gólfhiti er á baðherbergjum og loftkæling í báðum herbergjum og stofu. Rúmgóð verönd er fyrir framan húsið og þaðan er gengið upp í íbúðina sjálfa sem er öll á einni hæð. Svalir eru út frá stofu og eldhúsi og þaðan er gengið upp á stórar einka þaksvalir sem eru yfir allri íbúðinni. Rafmagn og vatn er innifalið í leiguverði.

Í boði verða níu leigur, tvær vikur í senn, og verða skiptidagar á þriðjudögum.

Verð fyrir tvær vikur er kr. 105.000, innifalið í verðinu er þrifagjald. 

Leigutímabilið hefst 25. maí og mun standa til 28. september.

ATH! Gott getur verið að vera með bílaleigubíl á þessu svæði. 

Nánari lýsing

Casa Tarifa er efri sérhæð í nýlegum íbúðarkjarna í Lomas de Cabo Roig hverfinu og er mjög vel búin, gólfhiti er í húsinu og loftkæling í báðum herbergjum og stofu. Rúmgóð verönd er fyrir framan húsið og þaðan er gengið uppí íbúðina sjálfa sem er öll á einni hæð. Svalir eru út frá stofu og eldhúsi og þaðan er síðan gengið uppá stórar einka þaksvalir sem eru yfir öllu húsinu,  þar eru sólbekkir, útihúsgögn, gasgrill, kolagrill, markísa og æðislegt útsýni.  Fallegur sundlaugargarður er inná milli húsana og hverfið er mjög rólegt og gott. 

Eldhús, stofa og borðstofa

Fyrir framan húsið er stór flísalögð verönd og þaðan er gengið uppí íbúðina,  komið er inní opið rými með fallegri stofu, borðstofu og eldhúsi. Í stofunni er góður sófi sem einnig er svefnsófi og nýr flatskjár með fjölmörgum erlendum sjónvarpstöðvum í áskrift. Loftkæling er í stofunni og einnig er WiFi internet.

Eldhúsið er opið yfir í stofu það er bjart og vel búið með ísskáp með frystihólfi. Í eldhúsinu er uppþvottavél, kaffivél, brauðrist, hraðsuðuketill og öll helstu áhöld til matargerðar.  Frá eldhúsi og stofu er gengið út á góðar svalir þar eru borð, stólar og markísa og þaðan er gengið uppá þaksvalirnar sem eru yfir íbúðinni með útsýni yfir æðislegan sameiginlegan sundlaugargarð fyrir íbúðarkjarnann. Á þaksvölum eru sólbekkir, stórt borð, stólar og risa stór markísa sem draga má yfir til að fá hlé frá sólinni.

Svefnherbergin eru tvö

Húsið er með tveimur svefnherbergjum og er með gistirými fyrir 4-6.

Hjónaherbergið er með hjónarúmi, góðum fataskápum og innangengt inná baðherbergi með sturtu.  Hitt svefnherbergið er með 135 cm breiðu rúmi og einnig er þar auka 90 cm dýna sem nota má fyrir barn. Bæði svefnherbergin eru með loftkælingu og nýjum rúmum. Sængur, koddar og rúmföt fylgja.

Baðherbergin eru tvö

Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu er innaf hjónaherbergi.
Baðherbergi með salerni, vaski, sturtu og innréttingu.
Baðhandklæði fylgja hverri leigu, eitt stórt og eitt lítið fyrir hvern gest og einnig er hárblásari og sléttujárn í húsinu.

Gestir eru þó beðnir um að koma með sín eigin handkæði til sólbaða og til að taka með á ströndina.

Verönd og svalir

Rúmgóðar verandir eru fyrir framan húsið og einnig eru góðar svalir út frá stofunni, þaðan er síðan gengið uppá á einka þaksvalir sem eru yfir öllu húsinu og af þeim sést vel yfir sundlaugargarðinn, uppi á þaksvölum eru 6 sólbekkir, útihúsgögn, gasgrill, kolagrill, markísa og fallegt útsýni yfir hverfið og niður á strönd.

Sundlaugargarður

Stór sameiginlegur sundlaugargarður er inná milli húsanna í lokuðum og læstum garði sem aðeins gestir hafa aðgang að. Þar er sundlaug með barnalaug og sturtur og frábær aðstaða til að sóla sig og njóta.  Garðurinn er einstaklega fallegur mjög fjölskylduvænn og húsið er vel staðsett í garðinum.

Svæðið skiptist í tvö hverfi Cabo Roig og Lomas de Cabo Roig

Cabo Roig hverfið er fyrir neðan hraðbrautina og er mjög vinsælt hverfi þar sem allt er til alls, þar er hin vinsæla göngugata sem stundum er kölluð „The Golden Mile“ og þar er alltaf mikið mannlíf og gaman að rölta um. Mikið úrval veitingastaða og ekki má gleyma öllum Kínabúðunum þar sem allt fæst fyrir ekki neitt, síðan er ströndin þarna rétt fyrir neðan og hægt að rölta þangað.  Í hverfinu er matvöruverslunin Consum, heilsugæsla, markaður á fimmtudögum og fjöldin allur af veitingastöðum.

Hverfið er mjög rólegt og gott og nokkrir veitingastaðir í göngufæri.

Það tekur um það bil. 30 mín að labba í La Zenia mallið frá hverfinu.

Frábærir golfvellir eru mjög stutt frá, Las Ramblas, Villamartin, Campoamor og Las Colinas svo einhverjir séu nefndir.