Um er að ræða glæsilegt 75 fermetra orlofshús með öllum helstu þægindum, stórum palli og heitum potti.

Svefnherbergin eru þrjú, tvö hjónaherbergi, í báðum er tvíbreitt rúm (160cm), og eitt herbergi með koju á þremur hæðum, neðsta kojan er 120 cm og tvær efri eru 80cm.

Eldhús og stofa eru í sama rýminu. Nettenging; 4G.

Leiktæki fyrir börn er víða að finna á þessu svæði, ærslabelgur, tveir sparkvellir eru í hverfinu og mínígolfvöllur. 

Þrífa skal bústað, grillið og heita pottinn við brottför, tæma uppþv.vélina og fara með allt rusl, dósir, gler o.þ.h.