Um er að ræða skiptihús. Eining-Iðja á 14 orlofshús á Illugastöðum og eru nokkur þeirra leigð til annarra stéttarfélaga yfir sumarið í skiptum fyrir orlofshús annars staðar á landinu.

Talnalás er á húsinu. Upplýsingar eru á leigusamningi.
Húsið er 52fm og er nyrst í Eyrarhlíð. Það eru rúmstæði fyrir 6 manns í þremur herbergjum, þar af eru 2 tvöföld rúm.
Borðbúnaður og áhöld eru fyrir 8 manns.
Húsið hefur verið endurnýjað að innan bæði hvað varðar innréttingar, rúm og stofuhúsgögn.
Taka þarf með sér; sængurfatnað (lín), handklæði, diskaþurrkur, borðklúta, salernispappír, ruslapoka o.þ.h.
Þráðlaust 4G samband er við Vodafone. Nánari upplýsingar í húsinu.
Hægt er að kaupa þrif, panta þarf fljótlega við komu í bústaðinn;  776-8008.