Eining-Iðja á samtals fjórtán orlofshús á Illugastöðum en nokkur þeirra eru leigð til annarra stéttarfélaga yfir sumarið í skiptum fyrir orlofshús annars staðar á landinu. Eitt af húsum félagsins er með aðgengi fyrir fatlaða einstaklinga, hús nr. 26.

Á Illugastöðum er sundlaug sem er eingöngu opin yfir sumartímann.

Leikvöllur er á svæðinu með skemmtilegum leiktækjum fyrir börnin. Stutt er yfir í Vaglaskóg þar sem miklir möguleikar eru til gönguferða.

Komutími í hús er eftir kl.16:00.

Brottför er fyrir kl. 12:00 yfir vetrar- og sumarleigutímabilið.

Þjónustumiðstöðin er lokuð.

Sjá nánar á heimasíðu orlofsbyggðarinnar