Eining-Iðja á samtals fjórtán orlofshús á Illugastöðum en nokkur þeirra eru leigð til annarra stéttarfélaga yfir sumarið í skiptum fyrir orlofshús annars staðar á landinu. Eitt af húsum félagsins er með betra aðgengi fyrir fólk með skerta hreyfigetu, hús nr. 26.
Á Illugastöðum er sundlaug sem er eingöngu opin yfir sumartímann.
Leikvöllur er á svæðinu með skemmtilegum leiktækjum fyrir börnin. Stutt er yfir í Vaglaskóg þar sem miklir möguleikar eru til gönguferða.
Komutími í hús er eftir kl.16:00.
Brottför er kl. 12:00 yfir vetrartímann og kl. 12:00 yfir sumartímann.
Þjónustumiðstöðin er lokuð.
Sjá nánar á heimasíðu orlofsbyggðarinnar