Um er að ræða leiguhús.

Í landi Bakka II í Ölfusi stendur orlofshúsið Garðshorn. Húsið er um 100 metra frá þjóðveginum til Þorlákshafnar, um 6 kílómetra frá Hveragerði. 

Fyrir þá sem vilja vera í næði og útaf fyrir sig er gott að dvelja í Garðshorni því húsið stendur ekki í orlofshúsabyggð heldur eitt og sér.

Engu að síður er örstutt í alla þjónustu því Garðshorn er, eins og áður segir, aðeins í um 6 kílómetra fjarlægð frá Hveragerði og þar með er ekki heldur langt til Selfoss eða höfuðborgarsvæðisins.