Í orlofshúsahverfinu Einarsstaðir á Héraði á Eining-Iðja fjögur hús. Tvö þeirra voru algjörlega endurnýjuð og stækkuð lítillega veturinn 2019-2020 og tvö veturinn 2020-2021.

Þannig að frá og með sumrinu 2021 var búið að endurnýja öll húsin. Óhætt er að segja að húsin eru stórglæsileg. Eftir stækkun eru þau um 62 fermetrar að stærð með tveimur svefnherbergjum.

Svefnpláss er fyrir 6 manns og sængur og koddar fyrir 6 manns. Borðbúnaður er fyrir 8 manns.

Þeir sem áhuga hafa á að leigja hús á svæðinu yfir vetrartímann er bent á að hafa samband við staðarhaldara í síma 471-1734, en hann sér um að leigja út hús þar frá 1.okt. - 1.maí.

Nettenging: 4G.

Talnalás er á húsunum. Upplýsingar eru á leigusamningi.