Breyta leigu:
- Sjóðfélaga er heimilt að breyta hverri bókun sinni í eitt skipti.
- Sjóðfélaga er heimilt að breyta bókun sinni með sólahrings fyrirvara innan sömu dagsetninga.
- Sjóðfélaga er heimilt að breyta bókun sinni með sjö daga fyrirvara ef dagsetningar eru ekki þær sömu.
- Ef sjóðfélagi færir sig yfir í dýrari leigukost þá greiðir hann mismuninn af leigugjaldinu.
- Ef sjóðfélagi færir sig yfir í ódýrari leigukost er mismunur af leigugjaldi ekki endurgreiddur.
- Ekki er heimilt að færa bókaða leigu yfir á leigutímabil sem ekki hefur verið opnað fyrir.