Lýsing: 

Íbúðin er með 2 svefnherbergjum og er 95 fm. Hugguleg vinnuaðstaða er í öðru herberginu (borð og stóll). Góð eldhúsaðstaða með barborði og 2 barstólum. Í borðstofunni er borðstofuborð með 6 borðstofustólum. Í stofunni er rúmgóður sófi og sjónvarp. Þvottahús er íbúðinni með þvottavél og þurrkara. Svalir eru á íbúðinni með garðhúsgögnum. Rafrænar Brafa læsingar eru í íbúðinni.

Hægt er að sjá blokkina hér á ja.is.

Mælum með að þeir sem eru að fara að dvelja í íbúðunum skoði myndirnar undir eigninni (fletti alveg út í enda), þar eru ýmsar yfirlitsmyndir.

Sorp:

Sorp þarf að fara með í djúpgáma sem eru hægra megin við húsið. Þegar horft er á bílakjallarann. 

Lín:

Afar mikilvægt er að taka með sér lök, sængurver og koddaver á rúmin ef sjóðfélagar panta það ekki sérstaklega við bókun.

Lín:

Einn pakki af líni kostar 1.500 kr. Hver pakki inniheldur eitt lak, eitt koddaver, eitt sængurver og eitt handklæði. Lín er keypt samhliða þegar íbúðin er bókuð á orlofsvefnum. Ef það er ekki gert þarf að senda tölvupóst á sjodir@bhm.is og óska eftir því að því sé bætt við bókunina. 

Þrif:

Hægt að kaupa þrif gegn greiðslu hjá umsjónarmanni, bókað er í gegnum síma: 894-0255. Hafa þarf samband með 2 daga fyrirvara. Sjóðfélagar ganga frá greiðslu beint við umsjónarmann. Mjög mikilvægt er að þó keypt sé þrif að farið sé með allt rusl út í ruslagáma og allt lín sé tekið af rúmum. 

Umsjónarmaður:

Umsjónarmaður er við símann frá kl: 8:00 til 17:00 á virkum dögum. Securitas svarar í símann eftir kl: 17:00 virka daga og um helgar og sinnir einugis brýnum erindum. 

Gestarúm:

2 auka gestarúm fyrir allar 4 íbúðirnar eru í geymslunni, hægt er að hafa samband við umsjónarmann í gegnum síma ef sjóðfélagi vill panta auka rúm.