Lín:
Orlofsgestir þurfa að koma með lín sjálfir. Ekki er í boði að leigja lín.
Þrif:
Orlofsgestir þrífa eftir sig sjálfir skv. leiðbeiningum í bústað. Almennt rusl, pappír og flöskur/dósir fara í gáma. Við bendum sjóðfélögum á að fara eftir leiðbeiningum í upplýsingamöppu um frágang í sumarhúsum.
Þrifagjald er innheimt að upphæð 25.000 kr ef ekki er þrifið nægilega vel eftir að umsjónarmaður hefur yfirfarið bústaðinn eftir dvöl sjóðsfélaga.
Kaup á þrifum:
Möguleiki er að kaupa þrif, hafa þarf samband við Johnny með lágmarki 2 daga fyrirvara (tölvupósti eða símleiðis), jndelux@hotmail.com, gsm: 783-5009.
Internet:
Frítt internet er í húsinu.
Umsjón:
Umsjónarmaður er á svæðinu 8:00 - 17:00 í síma. Securitas svarar í símann eftir kl: 17:00 virka daga og um helgar og sinnir þá einungis brýnum erindum.
Afþreying:
- Útivistarsvæði er í nágrenninu ásamt leikvelli með barnatækjum og körfuboltaspjaldi.
- Veiðileyfi í Hreðavatni fylgir húsinu.
- Golfvöllurinn Glanni er stutt frá (3 km) og þar greiða orlofsgestir hálft gjald.