Lýsing: 

Í húsinu eru þrjú svefnherbergi:

Þegar gengið er inn í húsið er skápur á hægri hönd. Eldhús og stofa eru í sama alrýminu. Inn á baðherberginu er salerni, vaskur, sturta og rúmgóður handklæðaofn. Út af baðinu er farið í heita pottinn. Rúmgóð útiverönd með heitum potti. Einnig eru útistólar, útiborð og gasgrill. 

Lín:
Orlofsgestir þurfa að koma með lín sjálfir. Ekki er í boði að leigja lín.

Þrif:
Orlofsgestir þrífa eftir sig sjálfir skv. leiðbeiningum í bústað. Almennt rusl, pappír og flöskur/dósir fara í gáma. Við bendum sjóðfélögum á að fara eftir leiðbeiningum í upplýsingamöppu um frágang í sumarhúsum.

Þrifagjald er innheimt að upphæð 25.000 kr ef ekki er þrifið nægilega vel eftir að umsjónarmaður hefur yfirfarið bústaðinn eftir dvöl sjóðsfélaga.

Kaup á þrifum:
Möguleiki er að kaupa þrif, hafa þarf samband við Johnny með lágmarki 2 daga fyrirvara (tölvupósti eða símleiðis), jndelux@hotmail.com, gsm: 783-5009.

Internet:
Frítt internet er í húsinu. 

Umsjón:
Umsjónarmaður er á svæðinu 8:00 - 17:00 í síma. Securitas svarar í símann eftir kl: 17:00 virka daga og um helgar og sinnir þá einungis brýnum erindum. 

Afþreying:

Aðrar upplýsingar: Við minnum sjóðfélaga á að lausaganga dýra á svæðinu er bönnuð og auk þess er meðferð skotvopna á svæðinu stranglega bönnuð.