Lýsing: 
Í húsinu eru þrjú svefnherbergi:
  • Eitt herbergi er með hjónarúmi sem er 160x200cm og fataskáp. 
  • Eitt herbergi er með kojum þar sem báðar dýnurnar eru 90 x 190 cm. 
  • Eitt herbergið er með kojum þar sem að neðri dýnan er 120 x 190 cm og efri dýnan er 80 x 190 cm.
  • Ungbarnarúm og ungbarnastóll er á staðnum. 
Þegar gengið er inn í húsið er skápur á hægri hönd. Eldhús og stofa eru í sama alrýminu. Inn á baðherberginu er salerni, vaskur, sturta og rúmgóður handklæðaofn. Út af baðinu er farið í heita pottinn. Rúmgóð útiverönd með heitum potti. Einnig eru útistólar, útiborð og gasgrill. 

Lín:
Orlofsgestir þurfa að koma með lín sjálfir. Ekki er í boði að leigja lín.

Þrif:
Orlofsgestir þrífa eftir sig sjálfir skv. leiðbeiningum í bústað. Almennt rusl, pappír og flöskur/dósir fara í gáma. Við bendum sjóðfélögum á að fara eftir leiðbeiningum í upplýsingamöppu um frágang í sumarhúsum.

Þrifagjald er innheimt að upphæð 25.000 kr ef ekki er þrifið nægilega vel eftir að umsjónarmaður hefur yfirfarið bústaðinn eftir dvöl sjóðsfélaga.

Kaup á þrifum:
Möguleiki er að kaupa þrif, hafa þarf samband við Johnny með lágmarki 2 daga fyrirvara (tölvupósti eða símleiðis), jndelux@hotmail.com, gsm: 783-5009.

Internet:
Frítt internet er í húsinu. 

Umsjón:
Umsjónarmaður er á svæðinu 8:00 - 17:00 í síma. Securitas svarar í símann eftir kl: 17:00 virka daga og um helgar og sinnir þá einungis brýnum erindum. 

Afþreying:
  • Útivistarsvæði er í nágrenninu ásamt leikvelli með barnatækjum og körfuboltaspjaldi.
  • Veiðileyfi í Hreðavatni fylgir húsinu.
  • Golfvöllurinn Glanni er stutt frá (3 km) og þar greiða orlofsgestir hálft gjald.
Aðrar upplýsingar: Við minnum sjóðfélaga á að lausaganga dýra á svæðinu er bönnuð og auk þess er meðferð skotvopna á svæðinu stranglega bönnuð.