Húsið er á einni hæð og er fyrir 7 manns.Gengið er inn í forstofu þar sem er þvottavél, þvottagrind og skápur með áfyllingarvörum. Gengið er inn gang þar sem eru 3 svefnherbergi og baðherbergi með sturtu.
- Herbergi 1 með hjónarúmi 180 cm x 200 cm
- Herbergi 2 með tvíbreiðu rúmi 160 cm x 200 cm og efri koju 90 cm x 200 cm
- Herbergi 3 með einbreiðu rúmi 90 cm x 200 cm og efri koju 90 cm x 200 cm
Inn af ganginum er samliggjandi stofa og eldhús og útgengt á verönd.
Á verönd eru útihúsgögn, grill og heitur potti.
Leigt lín og keypt þrif:
Þvottur & Lín bjóða upp á leigu á líni (rúmföt og handklæði) og þrifum fyrir sjóðfélaga.
Hægt er að fá upplýsingar um verð og afhendingu með því að senda tölvupóst á: panta@thvotturoglin.is eða hringja í síma 846-0845.
Athugið að panta þarf lín og/eða þrif með a.m.k. tveggja sólahringa fyrirvara. Sjóðfélagar panta þrif og lín sjálfir og greiða fyrir þau beint til þjónustuaðila.