Lýsing:
Þrif:
Afar mikilvægt er að húsunum sé skilað hreinum og snyrtilegum eftir dvöl (fylgja þrifaleiðbeiningum). Umsjónarmaður fer yfir húsin eftir hverja dvöl og þrifagjald getur verið innheimt séu vankantar á þrifum eftir sjóðsfélaga.
Panta þrif:
Hægt er að panta þrif með því að hringja í síma 894-7786 eða í gegnum tölvupóst á heimiliogthrif@gmail.com. Panta þarf þrif með 2 daga fyrirvara. Kaup á þrifum fer í gegnum þetta fyrirtæki og þeirra verðskrá.
Lín:
Mjög mikilvægt er að gestir koma sjálfir með lín (lök, sængurver og koddarver). Ekki er hægt að panta lín.
Internet:
Frítt þráðlaust internet er í húsinu.
Umsjón:
Umsjónarmaður er við virka daga frá kl: 8:00 - 17:00 í síma 894-9695. Eftir kl: 17:00 virka daga og um helgar svarar Securitas í símann og sinnir einungis brýnum erindum.
Athugasemdir:
Hafi sjóðfélagi einhverjar athugasemdir varðandi húsið (eitthvað vanti og/eða sé bilað) er hægt að hafa samband við umsjónarmann í síma 894-9695. Einnig er hægt að senda tölvupóst á sjoðir@bhm.is.
Hér er skemmtilegur vefur til þess að skoða nágrennið.