Lýsing: Þetta hús er nýtt og er fyrir 6 manns (en borðbúnaður fyrir 10 manns). Í húsinu eru 3 svefnherbergi; eitt herbergi er með rúmi sem er 160 cm x 200 cm og fataskáp. Í hinum tveimur herbergjunum eru 2 dýnur sem eru 80 cm x 200 cm. Í stofu eru þægilegur sófi, stóll og sjónvarp. Eldhúsið er með góðum aðbúnaði, eldhúsborði og 8 stólum. Baðherbergi er rúmgott og góður gangur. Á verönd er heitur pottur, útihúsgögn og grill. Leigt lín & keypt þrif: Þvottur & Lín bjóða upp á leigu á líni (rúmföt og handklæði) og þrifum fyrir sjóðfélaga. Hægt er að fá upplýsingar um verð og afhendingu með því að senda tölvupóst panta@thvotturoglin.is eða hringja í síma 846-0845. Athugið að panta þarf lín og/eða þrif með a.m.k. tveggja sólahringa fyrirvara. Sjóðfélagar panta þrif og lín sjálfir og greiða fyrir þau beint til þjónustuaðila.
Lýsing: Húsið var uppgert árið 2022. Í einu herbergi er rúm sem er 160 cm x 200 cm. Í öðru herbergi eru 4 kojur, dýnurnar eru 80 cm x 200 cm. Fyrir ofan kojurnar er ein aukadýna. Þægilegur og rúmgóður sófi í stofu ásamt sjónavarpi. Í eldhúsi er eldhúsborð með 6 borðstofustólum. Í forstofu er fataskápur. Á verönd er heitur pottur og grill. Leigt lín & keypt þrif: Þvottur & Lín bjóða upp á leigu á líni (rúmföt og handklæði) og þrifum fyrir sjóðfélaga. Hægt er að fá upplýsingar um verð og afhendingu með því að senda tölvupóst panta@thvotturoglin.is eða hringja í síma 846-0845. Athugið að panta þarf lín og/eða þrif með a.m.k. tveggja sólahringa fyrirvara. Sjóðfélagar panta þrif og lín sjálfir og greiða fyrir þau beint til þjónustuaðila.
Lýsing: Húsið skiptist í þrjú svefnherbergi. Í fyrsta herberginu er koja þar sem neðri dýnan er 118 cm x 202 cm og sú efri 75 cm x 202 cm. Í öðru herberginu er koja þar sem neðri dýnan er 124 cm x 203 cm og sú efri 78 cm x 203 cm. Þriðja herbergið er hjónaberbergi og stærðin á rúminu þar er 162 cm x 200 cm. Af baði er gengið út á pall, þar er heitur pottur. Opið er á milli eldhúss og stofu. Leigt lín & keypt þrif: Þvottur & Lín bjóða upp á leigu á líni (rúmföt og handklæði) og þrifum fyrir sjóðfélaga. Hægt er að fá upplýsingar um verð og afhendingu með því að senda tölvupóst panta@thvotturoglin.is eða hringja í síma 846-0845. Athugið að panta þarf lín og/eða þrif með a.m.k. tveggja sólahringa fyrirvara. Sjóðfélagar panta þrif og lín sjálfir og greiða fyrir þau beint til þjónustuaðila.
Íbúðin er með 2 svefnherberjum og er 97.10 fm. Hugguleg vinnuaðstaða er í öðru herberginu (borð og stóll). Góð eldhúsaðstaða með barborði og 2 barstólum. Í borðstofunni er borðstofuborð með 6 borðstofustólum og þægilegur stóll með hliðarborði. Í stofunni er þægilegur sófi og sjónvarp. Þvottahús er íbúðinni með þvottavél og þurrkara. Svalir eru á íbúðinni með garðhúsgögnum. 2 auka gestarúm fyrir allar 4 íbúðirnar eru í geymslunni, hægt er að hafa samband við umsjónarmann ef sjóðfélagi þarf auka rúm. Rafrænar Brafa læsingar eru í íbúðinni. Hægt er að sjá blokkina hér á ja.is. Mælum með að þeir sem eru að fara að dvelja í íbúðunum skoði myndirnar undir eigninni (fletti alveg út í enda), þar eru ýmsar yfirlitsmyndir.
Íbúðin er með 2 svefnherberjum og er 95,7 fm. Hugguleg vinnuaðstaða er á ganginum (borð og stóll). Góð eldhúsaðstaða með barborði og 2 barstólum. Í borðstofunni er borðstofuborð með 6 borðstofustólum. Í stofunni er rúmgóður sófi og sjónvarp. Þvottahús er íbúðinni með þvottavél og þurrkara. Svalir eru á íbúðinni með garðhúsgögnum. 2 auka gestarúm fyrir allar 4 íbúðirnar eru í geymslunni, hægt er að hafa samband við umsjónarmann ef sjóðfélagi þarf auka rúm. Rafrænar Brafa læsingar eru í íbúðinni. Hægt er að sjá blokkina hér á ja.is. Mælum með að þeir sem eru að fara að dvelja í íbúðunum skoði myndirnar undir eigninni (fletti alveg út í enda), þar eru ýmsar yfirlitsmyndir.