SKEIÐA- OG GNÚPVERJAHREPPUR Flatir 19 við Árnes í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, 801 Selfoss. Orlofsbústaðurinn er 90 m2 að stærð. Í honum eru tvö hjónaherbergi með tvíbreiðum rúmum (160 x 200) og eitt herbergi með koju 90x200 og einbreiðu rúmi 80x200. Tvær aukadýnur eru á svefnlofti. Á baði er þvottavél. Í eldhúsi er ísskápur með frysti, eldavél, bakarofni, uppþvottavél og örbylgjuofn og auk þess öll helstu áhöld sem þarf til matargerðar auk borðbúnaður fyrir 8 manns. Húsið er hitað upp með hitalögn í gólfi. Í húsinu er sjónvarp og útvarp. Gasgrill og á stórri verönd er heitur pottur. Athugið að stranglega bannað er framleigja bústaðinn til ættingja eða vina. Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum. Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita. Leiðarlýsing: Þegar komið er frá höfuðborgarsvæðinu um þjóðveg nr. 1: Ekið í gegnum Selfoss og áfram austur í átt að Hellu, Hvolsvelli og Vík. Beygt til vinstri inn á veg nr. 30 Skeiða- og Hrunamannaveg (m.a. að Flúðum). Beygt til hægri inn á veg nr. 32 Þjórsárdalsveg. Ekið að Árnesi og beygt til vinstri rétt austan við bensínstöðina / verslunina. Síðan til hægri inn á veg nr. 325 Gnúpverjaveg og ekið örstutt að fyrsta afleggjara til hægri sem er merktur „Flatir“. Frá þeim afleggjara er húsið við þriðju heimkeyrslu til vinstri.
Sómatún 1 Akureyri (Efri hæð til vinstri). Íbúðin er á efri hæð til vinstri í tveggja hæða fjölbýlishúsi sem byggt var árið 2012. Í íbúðinni er svefnaðstaða fyrir sjö manns. Tvíbreitt rúm er í svefnherbergi, tvíbreitt og einbreitt rúm í öðru herbergi og tvíbreitt rúm í því þriðja. Að auki er dýna (140 cm). Ungbarnarúm og barnastóll eru í íbúðinni, auk þess sem hún er búin öllum helstu tækjum. Eldhúsið er vel tækjum búið; uppþvottavél, örbylgjuofn og stór ísskápur með frysti. Borðbúnaður er fyrir tólf. Í þvottahúsi sem er inn af forstofu er þvottavél. Gasgrill og útihúsgögn eru á svölum íbúðarinnar. Ekki er leyfilegt að hafa gæludýr í orlofsíbúð OVFÍ í Sómatúni. VINSAMLEGA SÝNIÐ TILLITSEMI. ÍBÚÐIN ER Í FJÖLBÝLISHÚSI. HÁREYSTI ER BÖNNUÐ EFTIR KL. 22 VIRKA DAGA OG EFTIR MIÐNÆTTI UM HELGAR. Athugið að stranglega bannað er framleigja íbúðina til ættingja eða vina. Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum. Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.
Orlofsbústaðurinn Álfabrekka við Langavatn í landi Staffells í Fellahreppi Húsið er A bústaður á tveimur hæðum með rúmum fyrir fjóra. Svefnsófi er í stofu. Auk þess fylgja tvær dýnur. Í húsinu er ísskápur með frysti, tvær eldavélarhellur án bakarofns og er allur borðbúnaður fyrir átta manns. Kolagrill er í bústaðnum auk sjónvarps og útvarps. Stangveiði er leyfileg í Langavatni.
Bústaðurinn er um 120 fermetrar, sérlega glæsilegur og rúmgóður, með stórri verönd og heitum potti. Í bústaðnum eru fjögur svefnherbergi, svefnpláss fyrir að hámarki 10 manns. Tvíbreið rúm (160 x200) eru í fjórum herbergjum. Einbreitt (100 x 200) svefnpláss á millilofti í tveimur þeirra (brattur stigi) og einbreitt (100 x 200) rúm í vegg í borðstofu. Stutt er í einn besta golfvöll landsins, Kiðjabergsvöllinn. Í eldhúsi er eldavél með innbyggðum bakstursofni, örbylgjuofn og uppþvottavél. Bústaðnum fylgir gasgrill, snjallsjónvarp, útvarp og þvottavél. Barnarúm er í bústaðnum og barnastóll. Á vetrum (september til maí) er hlið að orlofshúsasvæðinu lokað - lykla (fjarstýringu) þarf að sækja á skrifstofu VFÍ. Á sumrin (júní til ágúst) er hliðið í Hraunborgir opið. Athugið að stranglega bannað er framleigja bústaðinn til ættingja eða vina. Vanræki leigutaki að þrífa vel eftir sig fær hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum. Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.
Á vetrum (september til maí) er hlið að orlofshúsabyggð lokað. Lykla (fjarstýringu) þarf að sækja á skrifstofu VFÍ, Engjateigi 9, sem er opin virka daga 9-16. Lyklum þarf að skila á sama stað strax að dvöl lokinni. Hliðið er opið á sumrin (júní til ágúst). Á veturna er húsið leigt frá fimmtudegi sumrin, júní til ágúst. til fimmtudags, á sumrin frá föstudagi til föstudags. Komutími er kl. 17 brottfarartími kl. 12. Bústaðurinn er um 80 fermetrar, rúmgóður, með stórri verönd og heitum potti. Stutt er í einn besta golfvöll landsins, Kiðjabergsvöllinn. Í bústaðnum eru þrjú svefnherbergi með rúmstæði fyrir að hámarki átta manns. (Hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi (160 x 200) barnaherbergi með tveimur kojum (4 rúmstæði, (70 x 200) og herbergi með rúmi, ein og hálf breidd (120 x 200). Í eldhúsi er eldavél með innbyggðum bakaraofni, örbylgjuofn og uppþvottavél. Bústaðnum fylgir gasgrill, sjónvarp, útvarp, nettenging og þvottavél. Barnarúm er í bústaðnum og barnastóll. Athugið að stranglega bannað er framleigja bústaðinn til ættingja eða vina. Vanræki leigutaki að þrífa eftir sig mun hann fá á sig merkingu í orlofskerfinu og getur því ekki bókað hús á vefnum. Orlofshúsin eru sameign sjóðfélaga, göngum um þau af alúð og sóma. Ef einhverju er ábótavant varðandi umgengni eða viðskilnað fyrri gesta vinsamlegast látið skrifstofu VFÍ vita.