Hver miði gildir fyrir tvo í gistingu í tveggja manna herbergi með handlaug í eina nótt. Ekki er innifalinn morgunverður.
Greiðslumiðana má nota Edduhótelunum sem eru 3 að tölu sumarið 2020
- Hótel Edda Akureyri
Opið: 8 júní - 15 ágúst 2020
- Hótel Edda Egilsstaðir
Opið: 4. júní - 15. ágúst 2020
- Hótel Edda Höfn
Opið: 1. apríl - 20. október 2020
Gestir sjá sjálfir um að bóka gistingu.
- Sé gist í herbergi m/baði greiðist aukagjald kr. 8.000,- á herbergi
- Morgunverður kostar kr. 2.450,- á mann.
- börn 0-12 ára fá frían morgunverð ef þau eru í fylgd með fullborgandi foreldrum.
Leyfilegt er að taka með sér 1-2 börn í herbergi án þess að greiða aukalega ef fólk hefur svefnpoka eða rúmföt, við útvegum dýnu. Uppábúna aukadýnu fyrir barn er hægt að fá inn á herbergi fyrir 1500,- kr. nóttin
Stéttarfélagsverð eru aðeins bókanleg í gegn um síma eða tölvupóst edda@hoteledda.is en ekki á netmiðlum (hvorki á heimasíðu hótelanna né öðrum miðlum) Sími í bókunardeild er 444 4570 og eins má hafa samband beint við hótelin þegar þau eru opin yfir sumartímann.
Eftirfarandi þarf að koma fram við bókun.
- Taka fram að gistingin greiðist með gistimiðum.
- Nafn þess hótels sem bókað er
- Nafn þess sem gistir á hóteli
- Kreditkortanúmer til staðfestingar bókun.
- Komu dagsetning með áætlaðan komu tíma á hótel (ef hægt er að verða við því) og brottfarar dagsetning.
- Fjöldi herbergja og tegund þeirra.
- Óskir um aðra þjónustu samanber morgunverð
Einnig verður að afhenda miðann við komu á hótel.
Kvöldverður á Hótel Eddu Akureyri og Hótel Eddu Egilsstöðum: Börn 5 ára og yngri fá frían mat ef þau panta það sama og foreldrar. Börn 6-12 ára greiða ½ gjald fyrir mat ef þau panta það sama og foreldrar.
Allar frekari upplýsingar veittar í síma 444 4570 og edda@hoteledda.is. Upplýsingar um hótelin má einnig fá á heimasíðu okkar www.icelandairhotels.is
Með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar.
Á lokunardegi lokum við á hádegi, síðustu gestir koma inn daginn áður.
20%
Fjórhjólaævintýri ehf 20% afsláttur af öllum ferðum.
|
20%
Laugarvatn Fontana20% afsláttur af fullu verði, afslátturinn gildir aðeins af aðgangi í Fontana. Gildir að hámarki fyrir 2 fullorðna eða fjölsk ...
|
|
20% / 2f1
World Class 2 fyrir 1 í baðstofu og 20% afsláttur af 3 mánaða kortum.
|
20%
Bílaleiga HertzTilboð 1:
Almennur afsláttur af vefverði er 20% með afsláttarkóðanum: FRIMANN
Innifalið: Ótakmarkaður akstur, CDW sjálfsá ...
|
|
10%
Bónstöð Hafnarfjarðar10% afsláttur af bóni.
|
Klúbbafsláttur
Snóker- og PoolstofanÍslandskortið er ígildi klúbbkorts (sömu kjör og klúbbmeðlmir). Sjá nánar á heimasíðu.
|
|
20%
Arctic Rafting20% afsláttur af River Fun dagsferð í Hvítá.
|
10%
Úr & Gull10% staðgreiðsluafsláttur og 5% afsláttur ef greitt er með kreditkorti. Gildir ekki með öðrum tilboðum.
|
|
2 fyrir 1
SkemmtigarðurinnTveir fyrir einn í minigolf á sumrin. Gildir ekki með öðrum tilboðum.
|
10%
South Central gisting10% afsláttur af gistiþjónustu. Taka fram að um Frímann afslátt er að ræða þegar bókað er.
|