|
Hver miði gildir fyrir tvo í gistingu í tveggja manna herbergi með handlaug í eina nótt. Ekki er innifalinn morgunverður. Greiðslumiðana má nota Edduhótelunum sem eru 3 að tölu sumarið 2020
Gestir sjá sjálfir um að bóka gistingu.
Leyfilegt er að taka með sér 1-2 börn í herbergi án þess að greiða aukalega ef fólk hefur svefnpoka eða rúmföt, við útvegum dýnu. Uppábúna aukadýnu fyrir barn er hægt að fá inn á herbergi fyrir 1500,- kr. nóttin Stéttarfélagsverð eru aðeins bókanleg í gegn um síma eða tölvupóst edda@hoteledda.is en ekki á netmiðlum (hvorki á heimasíðu hótelanna né öðrum miðlum) Sími í bókunardeild er 444 4570 og eins má hafa samband beint við hótelin þegar þau eru opin yfir sumartímann. Eftirfarandi þarf að koma fram við bókun.
Einnig verður að afhenda miðann við komu á hótel. Kvöldverður á Hótel Eddu Akureyri og Hótel Eddu Egilsstöðum: Börn 5 ára og yngri fá frían mat ef þau panta það sama og foreldrar. Börn 6-12 ára greiða ½ gjald fyrir mat ef þau panta það sama og foreldrar.
Með fyrirvara um ófyrirsjáanlegar breytingar.
|