Leita

Tímabil:
 
 
Stærð:
Vinsælar eignir Fleiri eignir >>
  • Reykjabær - Garðabraut 6

  • Rúmgóð stofa, eldhús með eldavél, bakaraofni, uppþvottavél og örbylgjuofni. Baðherbergi með sturtu, tvö svefnherbergi annað með hjónarúmi og hitt með einni og hálfri breidd og einbreiðu rúmi. Barnarúm og barnamatarstóll. Gistiaðstaða fyrir 5-6 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns.  Á háalofti eru svefnsófi, lausar dýnur, sjónvarp og dvd spilari. Í Reykjabæ er leyfilegt að vera með gæludýr. Þetta er rúmgott og bjart hús með fínum herbergjum og góðri verönd, falleg útihúsgögn, gasgrill og heitur pottur. Orlofshús í fallegu umhverfi nálægt Brúará. Á sumrin (maí - sept) er boðið er upp á veiðileyfi í ánni Fullsæl, sem rennur í Brúará.  Nánari upplýsingar eru í bústaðnum.   

  • Nánar >>
  • Skógarbær - Garðabraut 4

  • Rúmgóð stofa, eldhús með eldavél, bakaraofni, uppþvottavél og örbylgjuofni. Baðherbergi með sturtu, tvö svefnherbergi annað með hjónarúmi og hitt með einni og hálfri breidd og kojum. Barnarúm og barnamatarstóll. Gistiaðstaða fyrir 6 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns.  Á háalofti eru svefnsófi, lausar dýnur, sjónvarp, video, dvd spilari. Þetta er rúmgott og bjart hús með fínum herbergjum og góðri verönd, falleg útihúsgögn, gasgrill og heitur pottur. Orlofshús í fallegu umhverfi nálægt Brúará. Á sumrin (maí - sept) er boðið er upp á veiðileyfi í ánni Fullsæl, sem rennur í Brúará.  Nánari upplýsingar eru í bústaðnum.

  • Nánar >>
  • Arnarborg 7

  • Nýstárleg hönnun og mjög skemmtilegt hús.  Í eldhúsi eru öll tæki fyrsta flokks, m.a. uppþvottavél og örbylgjuofn.  Baðherbergi er með sturtu og þvottavél. Gistiaðstaða er fyrir 6 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Svefnherbergi eru 3. Eitt með hjónarúmi (king size), annað með 140 cm breiðu rúmi (queen size)  og hið þriðja með 90 cm kojum. Ferðabarnarúm og barnamatarstóll eru í húsinu.  Á háalofti eru svefnsófi, sjónvarp, video og dvd, þar eru líka 3 dýnur.  Húsið stendur innst í orlofshúsabyggðinni og útsýnið er stórkostlegt. Fjölskrúðugt fuglalíf á sumrin. Aðeins 3 km í miðbæ Stykkishólms. Húsið er stórglæsilegt með góðri verönd, glæsilegum útihúsgögnum, gasgrilli og heitum potti.

  • Nánar >>
  • Arnarborg 13

  • Nýstárleg hönnun og mjög skemmtilegt hús á einni hæð.  Stofan er góð með borðstofuborði fyrir 8 manns. Í eldhúsi eru öll tæki fyrsta flokks, m.a. uppþvottavél og örbylgjuofn.  Tvö baðherbergi eru í húsinu, annað með sturtu en hitt með þvottavél og þurrkara. Gistiaðstaða er fyrir 8 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Svefnherbergi eru 4. Eitt með hjónarúmi (king size), tvö með 160 cm breiðu rúmi (queen size plus)  og hið þriðja með tveimur 90 cm rúmum sem eru rennd saman en hægt er að renna þeim í sundur til að gera úr þeim tvö aðskilin rúm.  Ferðabarnarúm og barnamatarstóll eru í húsinu.   Húsið stendur efst í orlofshúsabyggðinni og útsýnið er stórkostlegt.  Fjölskrúðugt fuglalíf á sumrin.  Aðeins 3 km í miðbæ Stykkishólms. Húsið er stórglæsilegt með góðri verönd, glæsilegum útihúsgögnum, gasgrilli og heitum potti. Best er að koma að húsinu af veginum sem liggur meðfram útihúsunum og er beygt inná hann hjá kirkjugarðinum.  Keyrt áfram og í gegnum skógræktarlundinn og er þá húsið það fyrsta á hægri hönd þegar komið er út úr skóginum. 

  • Nánar >>
  • Gata Norðurljósanna nr 9 í Kjarnaskógi

  • Nýbyggt hús á sömu lóð og gamli bústaðurinn var.  Húsið er stórglæsilegt með góðri verönd, heitum potti, gasgrilli og útihúsgögnum. Það er á einni hæð með góðum kjallara.  Húsið er mjög rúmgott og með góðum hirslum.  Stofan er björt  með góðu útsýni yfir flugvöllinn og fjörðinn.  Í eldhúsi eru öll tæki fyrsta flokks.  Í húsinu eru þrjú svefnherbergi og eitt baðherbergi. Í kjallaranum er þurrkaðstaða fyrir skíðabúnað, þar er einnig þvottavél. Gistiaðstaða er fyrir 6 manns. Sængur og koddar fyrir 8 manns. Eitt herbergi er með hjónarúmi 180 cm breiðu, eitt herbergi með 2x 90 cm breiðum rúmum og eitt herbergi með 2x 80 cm breiðum rúmum, í báðum þessum herbergjum er hægt að renna rúmunum saman. Ferðabarnarúm og barnamatarstóll eru í húsinu. Auk þess eru 2 vindsængur í húsinu. Húsið stendur ofarlega í orlofshúsabyggðinni og útsýnið er stórkostlegt.   Mikið er um kanínur í skóginum í kring og á svæðinu og gaman að fara í göngutúr í Kjarnaskógi.  Aðeins 7 km eru í miðbæ Akureyrar.

  • Nánar >>