Upplýsingar eignar  -  Eiðar - hús nr. 4
Almennar upplýsingar
Nafn Eiðar - hús nr. 4 Tegund Sumarbústaður
Svæði Austurland Öryggis kóði
Heimilisfang
Lýsing

Hús PFÍ eru nr. 2 og nr. 4. Húsin eru í kjarrivöxnu fallegu umhverfi og standa við Eiðavatn. Um 14km akstur er til Egilsstaða þar sem er verslun, góð sundlaug og önnur þjónusta. 

Hús nr. 4 er 54m2 og eru 3 svefnherbergi með svefnstæðum fyrir 6 (hjónarúm og 2 kojur).

 Allur venjulegur búnaður er í húsunum. Sængur og koddar fylgja en hafa þarf með sér rúmföt, handklæði, diskaþurrkur, borðklúta, salernispappír, sápur o.þ.h.

Áhöld til ræstinga og gólfmoppa er í húsinu. Gestir þurfa að þrífa og skilja vel við húsin fyrir næsta leigutaka. 
Húsum PFÍ fylgir bátur og björgunarvesti. Gasgrill er í húsunum.

Sjá nánar

 

  • PFÍ er með opinn reikning hjá Olís og þar má láta skrifa gas á félagið gegn framvisun samnings.