Vinsćlar eignir Fleiri eignir >>
  • Reykjavík

  • Íbúðin okkar í Hátúni 4, 3. hæð, í Reykjavík hefur sannað ágæti sitt. Nýting og eftirspurn hefur verið mjög góð. Um er að ræða 3ja herbergja íbúð á frábærum stað. Hjónaherbergi er með barnarúmi, barnaherbergi er með 2 rúmum. Auk þess eru tvær lausar dýnur. Sex sængur og koddar eru í íbúðinni og er hægt er að leigja sængurfatnað (lín)  1.000 kr. fyrir manninn. Lyklar eru afhentir í samráði við skrifstofuna. Það er von okkar að sem flestir sjái sér hag í að nýta sér þessa góðu aðstöðu í höfuðborginni.

  • Nánar >>
  • Akureyri

  • Orlofsíbúð LL í Helgamagrastræti 45 er 3ja herbergja, í alla staði mjög góð fyrir 4-6 manns. Í henni er mjög gott hjónaherbergi, með barnarúmi. Í barnaherbergi eru stórar kojur. Auk þess eru tvær aukadýnur. Sex sængur og koddar eru til staðar. Parket er á allri íbúðinni sem gerir hana enn notarlegri. Sólpallur er vestanmegin við húsið og hefur garðurinn verið yfirfarinn talsvert. Dvalargestir þurfa að hafa með sér sængurfatnað (lín), handklæði, diskaþurrkur, sápu og salernispappír.  

  • Nánar >>
  • Fell í Biskuptungum

  • Landssambandið hefur á leigu íbúðarhúsið að Felli í Biskupstungum sem hefur verið mjög vinsæll gistimöguleiki. Húsið er um 140 fm. að stærð með 8 rúmstæðum og 6 lausum dýnum svo allt að 14 manns getur gist og eru sængur og koddar fyrir 12 til staðar. Búið er að endurbyggja húsið allt að innan á mjög smekklegan hátt með öllum nýtískuþægindum. Einnig er stór og góð sólverönd út frá stofunni þar sem er heitur pottur. Dvalargestir þurfa að hafa með sér sængurfatnað (lín), handklæði, diskaþurrkur, sápu og salernispappír. Lyklar eru afhentir í samráði við skrifstofu LL. Fell er um 100 km frá Reykjavík og þaðan er stutt til margra vinsælla ferðamannastaða allt um kring, s.s. Gullfoss, Geysis, Laugarvatns, Þingvalla o.fl. Næsti þéttbýliskjarni, er Reykholt í Biskupstungum, (1,5 km) þar er sundlaug, verslun, veitingar, banki, íþróttahús o.fl.

  • Nánar >>
  • Geysir

  • Nýtt og glæsilegt orlofshús LL að Geysi í Haukadal í Biskupstungum var tekið í notkun sumarið 2007. Bústaðurinn er um 130 fermetrar. Neðri hæðin er um 78 fermetrar, þar er eldhús, stofa, baðherbergi og 3 svefnherbergi. Efri hæðin er um 56 fermetra svefnloft, sem er frekar lágt undir loft að hluta til en þar er tvö rúm, tvíbreiður svefnsófi og fjórar aukadýnur. Dvalargestir þurfa að hafa með sér sængurföt (lín) handklæði, diskaþurrkur og WC pappír. Uppþvottavél er í eldhúsi og þvottavél á baði.  Þvottarefni í þvottavélina er ekki á staðnum þar sem misjafnt er hvað fólk getur notað af því. Heitur pottur er á stórri verönd og leiktæki fyrir börn á lóðinni. Bústaðurinn er hinn glæsilegasti og umhverfið býður upp á marga möguleika til útivistar. Innifalið í leigu eru vallargjöld fyrir tvo einstaklinga á Haukadalsvelli. Greiða þarf ef fleiri kylfingar spila. Eftir er að finna nafn á bústaðinn og eru félagsmenn beðnir um að koma tillögur að nafngift og óskast þær sendar á netfang LL: ll@bsrb.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

  • Nánar >>
  • Eiđar Hús 9

  • Sumarhúsabyggð BSRB að Eiðum stendur við Eiðavatn og þar á LL eitt hús með þremur svefnherbergjum (6 svefnstæði og 2 aukadýnur), stofu og eldhúsi. fylgir húsinu árabátur. Eddu Hótelið á Eiðum sér um að afhenda lykla og rúmfatnað. Egilsstaðir er næsti þéttbýliskjarni, en þangað er um 12 km. Þar er sundlaug, verslanir, banki o.fl. Náttúrufegurð Fljótsdalshéraðs lengi verið rómuð fyrir utan hvað kjörið er að gefa sér tíma til að skoða Austurlandið. Leigutími er frá 13. júní til 12. september Lífeyrisþegar hafa forgang leigu fyrstu fjórar vikur sumars

  • Nánar >>