Upplýsingar eignar  -  Klifatangi Suðursveit, Hús nr. 2
Almennar upplýsingar
Nafn Klifatangi Suðursveit, Hús nr. 2 Tegund Sumarbústaður
Svæði Suðurland Öryggis kóði
Heimilisfang
Lýsing

Í Suðursveit í Austur Skaftafellssýslu eru tveir bústaðir. Leigutími er yfir sumartímann, þ.e. frá því í byrjun júní fram í september. Húsin eru notaleg, en aðeins komin til ára sinna.

Svefnherbergi eru tvö. Þau eru ágætlega búin húsgögnum og öðrum búnaði. Geta 6-8 manns gist í einu í hvoru húsinu um sig.
Umhverfið er mjög fallegt og stutt í margar skemmtilegar gönguleiðir. Húsin eru staðsett í u.þ.b. 60 km. fjarlægð frá Höfn í Hornafirði. Ágætis veiðivötn eru í Smyrlabjargarfjalli og eru veiðileyfi seld á bæ á leið til fjallsins. Merking er við veginn.

Fluglalíf er mjög fjölskrúðugt í Suðursveit. Næsta sundlaug er í Öræfum 15-20 mín. akstur að Jökulsárlóni. Verslun er að Fagurhólsmýri en þangað er um 50 km. akstur.

Hér má sjá staðsetningu bústaðanna á korti.