Umgengni
Umgengni
Skila á húsunum hreinum fyrir þá sem næst koma í húsið. Umgengni lýsir innra manni. Húsnæðið eigum við saman. Gerum þetta með glæsibrag.
 
Húsbúnaður
Öllum orlofshúsum félagsins fylgja öll búsáhöld, sængur og koddar. Leigjendur þurfa að hafa með sér sænguver, koddaver, lök og handklæði. Nánari upplýsingar um fylgihluti hvers húss er að finna í leigusamningi. Ungbarnarúm og stóll eru í öllum húsum.

Við brottför
Þrífa húsið, grillið og heita pottinn
Athugið hvort allir gluggar séu lokaðir og kræktir
Hurðir vel lokaðar og læstar
Lykillinn kominn í lyklaskáp eða til umsjónarmanns
Ekki taka hita af húsinu við brottför