Reglur um útleigu orlofseigna

Vetrarleiga
Flest húsa okkar eru í útleigu allan veturinn. Þá er ekki stuðst við punktakerfi heldur ræður hver pantar fyrstur. Punktainneign skerðist um 2 punkta við vetrarúthlutun. Vetrarúthlutun skerðir ekki rétt til sumarúthlutunar.

Sumar- og páskaútleiga
Síðla vetrar eru send út umsóknareyðublöð til félagsmanna, þar sem gefinn er kostur á mörgum valkostum. Því fleiri valkosti sem merkt er við, þeim mun meiri líkur eru á að fá úthlutun. Umsóknir er tilgreini hvar og hvenær umsækjandi óskar að dvelja í orlofsheimilunum skulu hafa borist skrifstofu GRAFÍU fyrir eindaga sem auglýstur er á hverju ári. Einnig er hægt að senda inn umsókn í gegnum vefinn.

Úthlutunarreglur
Úthlutunarkerfið er einfalt. Sá sem á mesta punktainneign þeirra sem sækja um sama hús og sama tíma fær úthlutað. Ef aðilar eru jafnir að punktum fær sá úthlutað er fyrr gekk í félagið. Þeir sem fá úthlutað orlofshúsi á tímabilinu júní-ágúst, og um páska, missa punkta við úthlutun. Við páskaúthlutun eru teknir 12 punktar, við sumarúthlutun er teknir 20, 40 eða 60 punktar eftir því hvaða viku er um að ræða.

Pantað á vefnum
Þegar pantað er á vefnum þarf að velja "Innskráning" úr valmynd.  Næst er skráð inn kennitala og lykilnúmeri.  Þá er valið "Laus tímabil" úr valmynd.  Veljið viðeigandi mánuð og tímabil.  Þá þarf að ýta á hnapp neðst á síðunni "Senda" og siðan "Staðfesta".  Næsta skref er að "Samþykkja" skilmála og síðan þarf að haka við "Samþykkt" og velja hnappinn "Greiða."  Þú hefur 10 mínútur til að bóka orlofshús eftir það dettur þú út nema þú sért búinn að velja greiðslu í kortagátt þá gefast aðrar 10 mínútur til að greiða með kreditkorti áður en bókun dettur út.  Kvittun og leigusamningur sendist á uppgefið tölvupóstfang að greiðslu lokinni.  Þeir sem ekki hafa kreditkort þurfa að hafa samband við skrifstofu til að ganga frá greiðslu.

Öryggisnúmerin

Ef slys ber að höndum, hafið þá samband við neyðarlínuna í síma 112 og gefið upp öryggisnúmer hússins sem þið eruð stödd í.

Sumarútleiga (júní-ágúst)
Að vetri er send út tilkynning um umsóknarfrest til félagsmanna, umsóknir eru á orlofsvefnum þar sem gefinn er kostur á allt að tíu valmöguleikum. Fram kemur punktafrádráttur við hverja viku sem sótt er um. Því fleiri valkosti sem merkt er við, þeim mun meiri líkur eru á úthlutun.  Úthlutunarreglur er að finna hér að neðan.
 

Úthlutunarreglur
Á sumrin eru húsin og íbúðirnar flest leigð félagsmönnum til vikudvalar í senn, en á öðrum tímum eftir samkomulagi. Úthlutun fer fram eftir punkta-kerfi og eru reglur um ávinnslu og frádrátt punkta eftirfarandi:

Ávinnsla punkta
Hver félagsmaður sem greitt hefur fullt félagsgjald ávinnur sér einn punkt fyrir hvern mánuð sem hann er í félaginu eða 12 punkta á ári.

Frádráttur punkta við úthlutun
- Frá fyrstu til annarar úthlutunar júnímánaðar eru dregnir frá 20 punktar.
- Frá þriðju úthlutun júnímánaðar til fimmtu úthlutun júlímánaðar eru dregnir frá 40 punktar.
- Frá sjöttu úthlutun júlímánaðar til níundu úthlutunar ágúst mánaðar eru dregnir frá 60 punktar.
- Frá tíundu úthlutun ágústmánaðar eru dregnir frá 20 punktar.
- Við úthlutun á öðrum tímum koma 2 punktar til frádráttar utan páska.
Ef fleiri en ein umsókn er um sama húsið á sama tímabili ræður punktafjöldi hver hreppir hnossið. Ef punktafjöldi er jafn ræður sú umsókn sem berst fyrst. Á umsóknareyðublöðum um orlofshús er gefinn kostur á allt að níu valmöguleikum. Því fleiri valkosti sem merkt er við, þeim mun meiri líkur eru á úthlutun. Vetrarúthlutun skerðir ekki rétt til sumarúthlutunar.