Félagið á eitt hús nr. 13 í Ölfusborgum með FMA á Akureyri. Í því eru 6 rúmstæði, þar af ein koja. Húsinu fylgja öll búsáhöld, sængur og koddar, en hægt er að fá lín leigt. Í húsinu er sturtuklefi, sjónvarp, útvarp, örbylgjuofn, eldavél og bakaraofn, gasgrill, barnastóll og barnarúm. Heitur pottur er við húsið.
|