Íbúð FFR á Akureyri er að Tjarnarlundi 19e. Íbúðin er 86 fermetrar að stærð 3ja herbergja og skiptist í hjónaherbergi með tvíbreiðu rúmi 160x200, barnaherbergi með einbreiðu rúmi 120x200 og stofu með svefnsófa fyrir tvo, og er þaðan gengið út á svalir. Einnig er barnarúm og 2 auka dýnur í íbúðinni. Íbúðin er skemmtilega staðsett með útsýni yfir KA-völlinn við Dalsbraut. Örstutt er í bakarí og matvöruverslun og aðeins stutt ganga niður í bæ. Nýverið tók Akureyrarbær upp umfangsmikla flokkun sorps og er sérstök fata og pokar undir allan lífrænan úrgang í íbúðinni. Mjög mikilvægt er að farið sé eftir þessu í hvívetna ella kemur til sektar. Ílát undir pappír, gler og ál eiga að vera í milligangi. Vetrarverð: Lágmarkskostnaður (virka daga): 4.000 kr.Heilgarleiga: 13.000 kr.Aukadagur (virkur dagur): 2.000 kr.Vikuleiga: 22.000 kr. Sumarverð: Vikuleiga: 23.000 kr og 24 punktar
Húsið okkar í Munaðarnesi, Eyrahlíð 42 var allt endurnýjað vorið 2022. Þrjú svefnherbergi eru í húsinu. Herbergi eitt er með hjónarúmi 180x200. Herbergi tvö, er með koju þar sem neðri rúm er 160x200 og efri er 90x200 og Þriðja herbergið er með rúm 120x200. Einnig er barnarúm og því svefnpláss fyrir 7 til 8 manns Hafa þarf með sér handklæði og sængurföt. Vetrarverð: Lágmarkskostnaður (virka daga): 4.000 kr.Heilgarleiga: 13.000 kr.Aukadagur (virkur dagur): 2.000 kr.Vikuleiga: 22.000 kr. Sumarverð: Vikuleiga: 23.000 kr og 24 punktar
Þórsstígur 28 stendur við Búrfellsveg skammt frá hótel Grímsborg. Húsið er 154 fm með 3 svefnerbergjum. Tvö baðherbergi eru í húsinu og eru fjögur rúm 150 X 200 og efri kója 90 X 200. Húsið er allt hið glæsilegasta. Leigendur þurfa að koma með handklæði og sængurver. Leigjandi ber ábyrgð á húsinu / íbúðinni og öllum búnaði meðan á leigutíma stendur og skuldbindur sig til að bæta það tjón sem verða kann af hans völdum, eða þeirra sem þar dvelja á leigutíma. Leigjanda ber að tilkynna strax til umsjónarmanns eða félagsins allar skemmdir sem kunna að verða. Vinsamlega lesið samninginn sem er sendur í tölvupósti eftir að greitt hefur verið fyrir leigu. Einnig er hægt að finna samninginn á "SÍÐAN MÍN" eftir innskráningu. Athugið að 30 km hámarkshraði er innan svæðisins og fók ber að virða það.
Snotur nýuppgerð 75,1 m2 íbúð í rólegum og afgirtum íbúðakjarna sem ber heitið Residencial Benimar og stendur við Calle Reykjavik götuna á besta stað á Costa Adeje svæði Tenerife eyju. Frábærar 13,2 m2 svalir eru út frá stofu þar sem menn geta horft yfir báðar útisundlaugarnar sem eru í sameigninni. Auk þessa fylgir 32 m2 stæði/geymsla íbúðinni okkar í bílakjallara. Svefnpláss er fyrir 6 fullorðna í tveimur svefnherbergjum og á stórum svefnsófa í stofu. Í íbúðinni eru tvö baðherbergi, báðar með sturtu og fullbúið eldhús. Ekkert gasgrill fylgir eigninni því þau eru ekki leyfð í íbúðakjarnanum sjálfum. Það er von okkar að félagsmenn njóti dvalarinnar á nýja sælureitnum okkar en við viljum brýna fyrir félagsmönnum að félagsmaður sjálfur verður að dvelja í íbúðinni á meðan hann leigir hana. Áríðandi að senda umsjónarmanni tölvupóst viku fyrir komu með upplýsingum um flug og fjölda gesta. Óheimilt er með öllu að framleigja íbúðina öðrum eða að leigja hana fyrir aðra. Íbúðin er einungis ætluð félagsmönnum og þeim sem hann ákveður að bjóða með sér til dvalarinnar. Við afhendingu lykla þarf félagsmaður að framvísa leigusamning og vegabréfi eða öðrum skilríkjum. Þrifagjald er nú innifalið í verði. Athugið þó að skilja við íbúð í því ástandi sem þið tókuð við henni, eða jafnvel í betra ástandi! Vinsamlegast athugið að félagið endurgreiðir ekki dvöl sem félagsmaður hefur greitt nema að flug hafi fallið niður. Ef félagsmaður þarf að aflýsa ferð og getur ekki nýtt leigu íbúðarinnar t.d. vegna veikinda er mönnum bent á að hafa samband við sitt tryggingafélag um bætur.