Íslandshótel

Gistimiði gildir fyrir standard tveggja manna herbergi með morgunverði í eina nótt.
Uppfærsla á fjögurra stjörnu Grand Hótel Reykjavík og Fosshótel Glacier Lagoon verður 5.000 kr. fyrir hverja nótt.
 
Með fyrirvara um breytingar verða eftirtalin hótel opin í sumar:

  • Grand Hótel Reykjavík
  • Fosshótel Glacier Lagoon
  • Fosshótel Austfirðir
  • Fosshótel Húsavík
  • Fosshótel Vestfirðir
  • Fosshótel Stykkishólmur
  • Fosshótel Reykholt

Takmarkað framboð er á herbergjum á afsláttarverði, mælum því með að bóka fyrst áður en keyptur er gistimiði.

Skilmálar:

  • Sérverð gilda fyrir standard herbergi og hótelin áskilja sér rétt til að bjóða hærra gjald fyriraðrar herbergjatýpur.
  • Innifalið í verði er morgunverður og  internet aðgangur
  • Takmarkað framboð er á herbergjum á afsláttarverði.

Almennir bókunarskilmálar:

  • Við pöntun verður að koma fram að greitt verði með gistimiða.
  • 48 stunda afbókunarskilmálar, þ.e. rukkað er fyrir eina nótt ef herbergi er afbókað meðstyttri fyrirvara. Ef fleiri en tvær nætur eru bókaðar þá er rukkað 50% af heildarverði. Ef aðgestur mætir ekki þá þarf að greiða fulla greiðslu.

Bóka verður beint á hótelum í gegnum síma eða tölvupóst. Einnig er tekið við bókunum á aðalskrifstofu Íslandshótela í síma 562-4000 eða netfang: gistimidar@islandshotel.is. Ath. Ekki hægt að bóka í bókunarvél á heimasíðu Íslandshótela.